Skemmtiferðaskip
Hér má finna upplýsingar um komur skemmtiferðaskipa til Ísafjarðar og áhrif þeirra á efnahag, umhverfi og samfélagið.
Skemmtiskipakomur birtast í dagatalinu hér að neðan, sem er uppfært jafnóðum og upplýsingar breytast
Stefna og aðgerðaráætlun Ísafjarðarbæjar um móttöku skemmtiferðaskipa
Árið 2024 tók gildi stefna og aðgerðaáætlun um móttöku skemmtiferðaskipa við hafnir Ísafjarðarbæjar árin 2024–2027.
Stefnunni er ætlað að bæta upplifun gesta, minnka álag á samfélagið, bæta umhverfismál og tryggja sjálfbærni þessarar mikilvægu atvinnugreinar til lengri tíma.
Stefna og aðgerðaáætlun um móttöku skemmtiferðaskipa við hafnir Ísafjarðarbæjar 2024–27
Meðal þess sem kveðið er á um í stefnunni er:
- Hámarksfarþegafjöldi á einum degi.
- Teknir verða upp fjárhagslegir umhverfishvatar til að draga úr mengun, t.d. EPI, þegar Alþingi heimilar slíka gjaldtöku.
- Komið verði á varanlegri lausn á salernismálum í öllum byggðakjörnum Ísafjarðarbæjar sem gestir skemmtiferðaskipa heimsækja.
- Verklegar framkvæmdir við að bæta gönguleiðir, öryggismál og aðgengi á Ísafjarðarhöfn skulu hefjast strax 2024. Samhliða verði núverandi gönguleiðir afmarkaðar betur, meðal annars til að varna því að bílar leggi á göngusvæðum.
- Landtaka skemmtiferðaskipa utan hafna í landi Ísafjarðarbæjar er bönnuð nema í undantekningartilvikum.
- Skipstjórum verði bannað að þeyta skipsflautur nema þegar þess er krafist af öryggisástæðum.
- Hafnarstjóri hafi frumkvæði að því að halda tvo fundi á ári með hagaðilum, einn í apríl og annan í september.
Hvað þýða komur skemmtiferðaskipa fyrir svæðið?
Komur skemmtiferðaskipa skipta öllu máli fyrir rekstur hafna Ísafjarðarbæjar. Tekjur af komum skemmtiferðaskipa eru um helmingurinn af heildartekjum hafnarinnar. Án þessara tekna væru hafnirnar reknar með tapi og þyrftu niðurgreiðslu úr bæjarsjóði, eins og kom glögglega í ljós þegar komur skemmtiferðaskipa féllu nær allar niður vegna heimsfaraldurs COVID-19.
Samkvæmt ítarlegri könnun sem framkvæmd var meðal skemmtiferðaskipafarþega á Ísafirði sumarið 2018 var meðaleyðsla þeirra í landi um 120 evrur, eða um 16.500 krónur. Um 29% þeirrar eyðslu voru í handverk og minjagripi, föt og mat og drykk í landi. Þetta eru um 4.800 krónur á hvern farþega, eða 500 milljónir eingöngu í verslun og veitingar á Ísafirði yfir sumarið ef eyðslan er heimfærð yfir á alla farþega sem komu til bæjarins með skemmtiferðaskipum.
Ríflega 2/3 hlutar eyðslunnar (um 11.700 kr.) voru í ferðir innan svæðisins, en viðskipti við farþega skemmtiferðaskipa eru hryggjarstykkið í rekstri fjölmargra ferðaþjónustufyrirtækja og stofnana á norðanverðum Vestfjörðum.
Eldsneyti og útblástur
Brennisteinstvíoxíð (SO2) er algengt mengunarefni sem losnar út í umhverfið við brennslu á jarðefnaeldsneyti. Losun SO2 er langmest frá flugvélum, þar næst frá bílum en langminnst frá skipum. Í mengunarlögsögu Íslands gildir almennt sú regla að skip mega brenna svartolíu með brennisteinsinnihaldi að hámarki 3,5%. Um farþega- og skemmtiferðaskip gilda aðrar reglur. Þar má hámarks brennisteinsinnihald ekki fara yfir 1,5% til 1. janúar 2020 en eftir það gilda enn lægri viðmið.
Þegar skemmtiferðaskip leggjast að bryggju í íslenskri höfn er slökkt á aðalvélum skipsins. Ljósavélarnar eru hins vegar áfram í gangi enda orkuþörfin mikil. Öllum skipum við bryggju er skylt að nýta sér rafmagn úr landi í stað skipaeldsneytis ef það er mögulegt. Það gildir auðvitað líka um stór skip eins og skemmtiferðaskip en dreifikerfi raforku er því miður vanbúið til að veita slíka þjónustu enda kalla slík skip á háspennutengingar. Íslenskar hafnir eiga að óbreyttu enga möguleika á að fjármagna landtengingar stórra skipa án verulegrar aðstoðar ríkisins, enda um milljarða fjárfestingar að ræða.
Þann 22. febrúar 2019 tók í gildi fullgilding Íslands á viðauka VI í MARPOL-samningnum um loftmengun frá skipum. Frá og með 1. janúar 2020 má brennisteinsinnihald í skipaeldsneyti sem notað er hér á landi og í mengunarlögsögu Íslands ekki vera meira en 0,5% (m/m). Þetta gildir einnig um öll heimshöfin fyrir utan þau svæði sem í dag eru skilgreind mx. 0,1 % (ECA svæði). Frá árinu 2020 hefur því ekki verið leyfilegt að nota svartolíu nema skip séu útbúin hreinsibúnaði og sá búnaður nægi til að brennisteinsinnihald fari ekki yfir 0,5%.
Mengunarvarnir
Ný lofthreinsikerfi skemmtiferðaskipa hafa þá eiginleika að minnka losun brennisteinstvíoxíðs (SO2) um 98%. Mörg skemmtiferðaskip eru með sérstakar síur til varnar því að sót berist út í andrúmsloftið. Æ fleiri skemmtiferðaskip eru líka búin sólarrafhlöðum til þess að draga úr þörfinni fyrir mengandi orkuframleiðslu.
Útgerðir skemmtiferðaskipa leggja metnað sinn í að skipin losi hvergi í heiminum ómeðhöndlað skólp. Skemmtiferðaskip flokka allan sinn úrgang sem komið er til móttökuaðila í höfn. Útgerðir skemmtiferðaskipa leggja áherslu á að endurnýja flota sinn samkvæmt bestu fáanlegri tækni. Þær verja á annað hundrað milljörðum króna til að gera skipin umhverfisvænni, því það er orðin krafa hjá flestum löndum.